Vísir,
24. Júlí 2006 12:30
Vampíran Nash: hannar vígtennur fyrir
Íslendinga
Fjölskyldan
hrædd við brjálæðinga
|

Nash Heitir réttu nafni Jonaðan Pétursson
og vissi
að Leifur Eiríksson hefði fundið Ameríku.
Hann heimtaði því að fá myndina af
sér tekna fyrir framan kappann hjá Hallgrímskirkju.
|
Vígtennur eins
og þær sem varúlfar og
vampírur skarta eru í hugum
flestra eitthvað sem á bara heima í kvikmyndum en
hér á landi er
staddur sérfræðingur í
vígtannagerð. Sá heitir Nash og geta
áhugasamir kynnt sér verk hans hjá
húðflúrastofunni Stúdíó 54
þar sem
Fjölnir Bragason ræður ríkjum. Reyndar er
þetta ákaflega viðkunnalegur
náungi sem býr rétt fyrir utan New York. Hann
talar hratt en hefur
augljóslega gaman af því að vera hér
á Íslandi. „Ég er hér til að kynna
vígtennur sem líkamsskraut," segir Nash en
viðurkennir að þetta sé ekki
jafn vinsælt og götun eða húðflúr.
„Þetta hefur samt sem áður verið að
ryðja sér rúms og er orðið nokkuð
vinsælt á alþjóðavísu,"
bætir Nash
við og segir að varúlfstennurnar séu
eftirsóttastar.
Nash
hefur verið á ferðalagi að undanförnu og
meðal annars komið við í
Ástralíu auk þess að hafa staldrað við
í flestum ríkjum Bandaríkjanna.
Reyndar hófst þetta tann-ævintýri Nash fyrir
algjöra slysni því hann
segist fyrst og fremst vera tónlistamaður. „Ég var
með langar tennur
þegar ég var yngri og fór til tannlækna sem
reyndu að laga þær. Þegar
ég var síðan að spila á tónleikum
sá ég strák með svona tennur og fór
til tannlæknis sem útbjó svona handa mér.
Móður minni var svo illa við
þær að hún eyðilagði þær
eina nóttina. Það stöðvaði mig
þó ekki, ég
fékk efnið hjá tannlækni og ég
bjó bara til nýjar. Vinum mínum fannst
þetta töff og svo byrjaði boltinn að rúlla,"
útskýrir Nash og segir að
fjölskyldunni sinni hafi ekkert litist á þessa
atvinnugrein hans til að
byrja með. „Þau voru skíthrædd við allt
þetta brjálaða fólk sem ég
kynni að komast í tæri við," segir Nash en að
gefnu tilefni skal tekið
fram að tennurnar eru gerðar úr plasti og
því þurfa viðskiptavinirnir
ekki að hafa áhyggjur af því að þeir
verði með vampírutennur til
eilífðar.
Nash er orðinn nokkuð þekktur fyrir
handbragð sitt
og hafa kvikmyndaframleiðendur haft samband við hann
þegar gera á
vampírumyndir. „Það eru aðallega
tæknibrellumeistararnir sem koma að
máli við mig og vilja fá ráð,"
útskýrir Nash en vill þó sem minnst gera
úr þessu sambandi sínu við Hollywood.
Nash fer héðan á
þriðjudaginn en er staðráðinn í að
koma aftur hingað enda segist hann
kunna ákaflega vel við land og þjóð.
„Ég er hvorki giftur né á börn en
held að ég hafi fundið rétta staðinn til
að leita."